Elma Lísa og Nína Björk Gunnarsdætur

Elma Lísa og Nína Björk Gunnarsdætur

Kaupa Í körfu

Elma Lísa Nína Björk er ákaflega opin og frökk manneskja. Hún er algjörlega ófeimin og kemur manni alltaf í gott skap. Hún hlær líka rosalega hátt, það hvellir í henni. Fyrir vikið er hún mjög vinsæll gestur á gamansýningum í leikhúsi. Nína Björk Elma Lísa er einstaklega hæfileikarík manneskja og mikill dugnaðarforkur. Ég hef alltaf litið upp til hennar og er stolt af því að vera litla systir hennar Elmu. Ætli helsta einkenni hennar sé ekki persónutöfrarnir. Hún sjarmerar alla upp úr skónum. Fólk er upp til hópa tilbúið að gefa henni aleiguna – og hefur gert það. Grínlaust!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar