Bræður og systur

Friðrik Tryggvason

Bræður og systur

Kaupa Í körfu

BRÆÐUR og systur var yfirskrift tónleika sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens blés til í Austurbæ á miðvikudag. Tónleikunum var ætlað að vekja Íslendinga til umhugsunar um kynþáttafordóma sem Bubbi segir að séu vaxandi í samfélaginu og tiltók því til staðfestingar vefsíðu sem sett hafði verið upp til höfuðs Pólverjum sem hingað hafa flust. Fjölmargir íslenskir tónlistarmenn auk pólskrar hljómsveitar hlýddu kalli Bubba og tróðu upp og ekki var annað að sjá á tónleikunum en framtakið hafi verið þarft og þakklátt. Forsætisráðherra Íslands, Geir H. Haarde, steig einnig á svið og söng með Bubba en Geir er, eins og margoft hefur komið fram, söngelskur maður og rann honum því blóðið til skyldunnar á tvöfaldan máta. MYNDATEXTI Einstakur KK tróð upp með gítarinn og söng og spilaði eins og honum er einum lagið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar