Veitt á ís

Birkir Fanndal Haraldsson

Veitt á ís

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Mývetningar voru komnir fram á vatn með nokkur net til að vaka undir í lok þorra. Þeir eru reyndar ekki margir núorðið sem halda við þeim gamla og góða sið að vaka undir. Þó mátti sjá nokkra bíla frammi á ísnum á föstudaginn í börtu og fallegu veðri. Fréttaritari brá sér fram á ísinn og hitti bændur að máli. MYNDATEXTI Lítið æti Gylfi Yngvason á Skútustöðum, setti undir strax um síðustu helgi og hann var að vitja um suður af Sviðinsey. Hann sagði að veiðin væri um það bil branda í net og þó það væri lítið þá væri silungurinn og ánægjan næg til þess að hann færi framá. Hann hafði þó áhyggjur af því að lítið æti væri í silungnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar