Bræla - Kaldbakur EA 301

Þorgeir Baldursson

Bræla - Kaldbakur EA 301

Kaupa Í körfu

Þorskur er genginn á miðin fyrir austan og togararnir flýja slóðina AÐEINS voru tveir togarar á Austfjarðamiðum í upphafi vikunnar en í síðustu viku og áður voru þeir þar upp í 20 í einu. Skýringin er einföld. Þorskurinn er að ganga í miklum mæli á slóðina þar sem ýsa var í miklum mæli áður. Það eru allir að forðast þorskinn. "Okkur vantar þorskafælu," segir Jóhann Gunnarsson, skipstjóri á Kaldbak. MYNDATEXTI: Bræla Rysjótt veður í vetur hafa gert sjómönnum lífið leitt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar