Skautakensla á svellinu í Egilshöll

Skautakensla á svellinu í Egilshöll

Kaupa Í körfu

Skautað í skammdeginu á svellinu í Egilshöll ÞAÐ getur svo sannarlega verið vandasamt að halda jafnvæginu þegar maður er að stíga sín fyrstu skref á skautasvellinu. Þá er vissara að njóta leiðsagnar sér reyndari skautahlaupara og ekki sakar síðan að geta stutt sig við hjálpargrind á borð við þá sem í boði er í Egilshöll handa skautaiðkendum. Vafalaust verður litla hnátan, sem renndi sér á skautasvellinu undir vökulu auga vinkvenna sinna, orðin fullnuma í skautahlaupum fyrr en varir haldi hún áfram að æfa af krafti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar