Manchester United og Bayern München
Kaupa Í körfu
Ævintýraleg stemmning í fjóra sólarhringa vegna úrslitaleiks Manchester United og Bayern München í Barcelona. Lokasekúndur úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu voru ævintýri líkastar Svo halda sumir að knattspyrna snúist bara um knattspyrnu og hver leikur standi einungis í 90 mínútur! Það kom berlega í ljós í Barcelona á Spáni í síðustu viku að svo er ekki. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópukeppninnar milli Manchester United og Bayern M¨unchen stóð að sönnu strangt til tekið í 90 leik-mínútur, ef svo má að orði komast, eins og venja er í þessari íþróttagrein, en stuðningsmenn félaganna héldu uppi merki þeirra með söng og dansi buðu til sannkallaðrar gleðiveislu, sem lengi verður í minnum höfð í tvo sólarhringa fyrir leik. Þar voru áhangendur enska liðsins raunar mun kraftmeiri og svo vígalegir og hamingjusamir að sumum fannst nóg um á köflum. Í tvo og hálfan sólarhring að viðureigninni lokinni fagnaði svo gríðarlegur fjöldi þeirra áfram í borginni. MYNDATEXTI: FJÖLDI Englendinga varð að gera sér að góðu að sofa úti undir berum himni í Barcelona. Þeir kipptu sér ekki upp við það, enda veðrið gott og allir í góðu skapi. Enda skipti mestu máli, sögðu þeir, að geta sagt síðar meir: Ég var þar! Hér hefur einn lagst til hvílu seint og um síðir um nóttina eftir leikinn, undir pappaspjaldi, en félagi hans hægra megin á enn eitthvað vantalað við fólk í nágrenninu.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir