Manchester United og Bayern München
Kaupa Í körfu
Ævintýraleg stemmning í fjóra sólarhringa vegna úrslitaleiks Manchester United og Bayern München í Barcelona. Lokasekúndur úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu voru ævintýri líkastar Svo halda sumir að knattspyrna snúist bara um knattspyrnu og hver leikur standi einungis í 90 mínútur! Það kom berlega í ljós í Barcelona á Spáni í síðustu viku að svo er ekki. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópukeppninnar milli Manchester United og Bayern M¨unchen stóð að sönnu strangt til tekið í 90 leik-mínútur, ef svo má að orði komast, eins og venja er í þessari íþróttagrein, en stuðningsmenn félaganna héldu uppi merki þeirra með söng og dansi buðu til sannkallaðrar gleðiveislu, sem lengi verður í minnum höfð í tvo sólarhringa fyrir leik. Þar voru áhangendur enska liðsins raunar mun kraftmeiri og svo vígalegir og hamingjusamir að sumum fannst nóg um á köflum. Í tvo og hálfan sólarhring að viðureigninni lokinni fagnaði svo gríðarlegur fjöldi þeirra áfram í borginni. MYNDATEXTI: GLATT var á hjalla í fjóra sólarhringa hjá stuðningsmönnum Manchester United í Barcelona. Ekki væri gott að átta sig á því hvort þessi mynd er tekin fyrir eða eftir leik, miðað við hve gleðin er mikil, en rétt er að taka fram að hún er tekin kvöldið fyrir leik og sýnir vel hve mikil stemmning ríkti í hópum ensku knattspyrnuáhugamannanna allan tímann.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir