Innlit

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Innlit

Kaupa Í körfu

Einhverju sinni voru húsakynnin við Lindargötu full af karamellu, súkkulaðistaurum og páskaeggjum. Nú búa þar félagsfræðingur og auglýsingamaður sem Fríða Björnsdóttir heimsótti. Lengi hefur tíðkast, t.d. í New York, að breyta verksmiðju- og iðnaðarhúsnæði, loftum eins og slíkt húsnæði er kallað þar á bæ, í flottar og eftirsóttar íbúðir. Minna hefur verið gert af því hér þótt það þekkist. Fram á níunda áratuginn var Sælgætis- og efnagerðin Freyja til húsa í tveimur stórum sambyggðum húsum við Lindargötu. Í þessum húsum eru nú fallegar íbúðir, sannkölluð loft. MYNDATEXTI Vatnsfylltur fótur Borðstofuborðið er þeirrar náttúru að vatn er sett í fótinn til þess að það sé stöðugt. Ljósgeislarnir frá ljósakrónunni leika á veggjum og lofti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar