Hlutverkasetur opnar heimasíðu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hlutverkasetur opnar heimasíðu

Kaupa Í körfu

GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, opnuðu heimasíðu Hlutverkaseturs, hlutverkasetur.is, í gær að viðstöddu fjölmenni. Grétar og Ingimundur eru báðir í Bakhjarlahópi Hlutverkaseturs, sem er í nánu samstarfi við Hugarafl, samstarfshóp notenda í bata og iðjuþjálfa. Sérstaða Hlutverkaseturs er að notendaþekking er metin til jafns við fagþekkingu, þannig að þátttakendur í endurhæfingu hafa áhrif á þróun og uppbyggingu fyrirtækisins. Hlutverkasetur er einkafyrirtæki og byggist á þjónustusamningum við opinbera aðila og einkafyrirtæki. MYNDATEXTI Bakhjarlar Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, opnuðu heimasíðu Hlutverkaseturs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar