Bjórhátíð plakat

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bjórhátíð plakat

Kaupa Í körfu

SKJALDARMERKIÐ er auðkenni stjórnvalda þannig að enginn annar hefur leyfi til þess að nota það, segir Páll Þórhallson, lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, spurður um lög er varða skjaldarmerki Íslendinga en kráargestir og aðrir sem leið hafa átt um miðbæinn hafa ef til vill tekið eftir auglýsingaveggspjaldi þar sem landvættirnar standa við skjaldarmerki Íslands með bjórkrús í hönd MYNDATEXTI Drekk og ver glaðr Umrædd auglýsing sem hangir víða um bæinn. Landvættirnar óneitanlega glaðlegri en í hinu opinbera skjaldarmerki Íslands. Þá má einnig velta því fyrir sér hvort auglýsingin brjóti áfengislög þar sem segir að bannað sé að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar