Manchester United og Bayern München
Kaupa Í körfu
Ævintýraleg stemmning í fjóra sólarhringa vegna úrslitaleiks Manchester United og Bayern München í Barcelona. Lokasekúndur úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu voru ævintýri líkastar Svo halda sumir að knattspyrna snúist bara um knattspyrnu og hver leikur standi einungis í 90 mínútur! Það kom berlega í ljós í Barcelona á Spáni í síðustu viku að svo er ekki. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópukeppninnar milli Manchester United og Bayern M¨unchen stóð að sönnu strangt til tekið í 90 leik-mínútur, ef svo má að orði komast, eins og venja er í þessari íþróttagrein, en stuðningsmenn félaganna héldu uppi merki þeirra með söng og dansi buðu til sannkallaðrar gleðiveislu, sem lengi verður í minnum höfð í tvo sólarhringa fyrir leik. Þar voru áhangendur enska liðsins raunar mun kraftmeiri og svo vígalegir og hamingjusamir að sumum fannst nóg um á köflum. Í tvo og hálfan sólarhring að viðureigninni lokinni fagnaði svo gríðarlegur fjöldi þeirra áfram í borginni. MYNDATEXTI: ENGLENDINGAR og Þjóðverjar ræddust við í mesta bróðerni að leikslokum í miðborg Barcelona, þar á meðal þessi Þjóðverji, til vinstri, í leðurbuxunum einkenni Bæjaralands og Englendingurinn með treflana.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir