Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Akureyri

Kaupa Í körfu

FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar eru ekki hrifnir af þriggja ára áætlun meirihlutans sem afgreidd var í bæjarstjórn í fyrradag eftir seinni umræðu. Oddviti Vinstri grænna segir áætlunina sjónhverfingu og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins talar um að meirihlutinn stundi froðusnakk og segir fjármálastjórn hans ekki góða. Meirihlutinn sagði, í tilkynningu á þriðjudaginn í tengslum við bæjarstjórnarfundinn, að fjárhagsstaða Akureyrarbæjar væri traust og þrátt fyrir miklar framkvæmdir aukast skuldir A- og B-hluta lítið á tímabilinu en verða þó nokkuð lægri á hvern íbúa árið 2011 en var í árslok 2006, sagði þar. MYNDATEXTI Unnið er af krafti um þessar mundir á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs í Glerárhverfi enda mikið verk framundan þar, fyrir Landsmót Ungmennafélags Íslands 2009.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar