Þórður Magnús Tryggvason

Þórður Magnús Tryggvason

Kaupa Í körfu

Kakan er virkilega ljúffeng. Þú ættir endilega að fá þér sneið, sagði hinn fimmtán ára Þórður Magnús Tryggvason þegar Daglegt líf heimsótti hann í foreldrahús í Kópavogi í liðinni viku. Bökunarilminn lagði út á hlað og búið var að hella upp á rótsterkt kaffi til að dreypa á með appelsínukökunni sem Þórður bakaði og hjúpaði síðan með súkkulaðihjúp með appelsínukeim. MYNDATEXTI Bakarinn Þórður Magnús Tryggvason er búinn að leggja línurnar fyrir framtíðina og stefnir að því að læra að elda reglulega góðan mat

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar