Fram - Afturelding

Fram - Afturelding

Kaupa Í körfu

FRÖMURUM tókst með naumindum að merja sigur á Aftureldingu, 28:26, er Mosfellingar sóttu Safamýrarpiltana heim í N1-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Ég er að sjálfsögðu mjög vonsvikinn með þetta tap. Við vorum inni í þessum leik nánast allan tímann og mér fannst við eiga miklu meira skilið en að tapa þessum tveimur stigum miðað við hvernig leikurinn spilaðist. Jafntefli hefði kannski verið sanngjarnt, sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar. MYNDATEXTI Slagsmál Brjánn Bjarnason og Rúnar Kárason úr Fram sameinast um að stöðva Davíð Ágústsson, línumann Aftureldingar. Framarar þurftu mikið að hafa fyrir því að leggja Mosfellingana að velli,28:26.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar