Undirskriftalisti afhentur

Valdís Þórðardóttir

Undirskriftalisti afhentur

Kaupa Í körfu

ATLANTSOLÍA hefur undanfarna 19 daga verið í forsvari fyrir undirskriftasöfnun, þar sem skorað er á stjórnvöld að leyfa sölu á lituðu bensíni. Alls söfnuðust 4.920 undirskriftir sem afhentar voru í fjármálaráðuneytinu á föstudag. Talsmenn Atlantsolíu segja að yrði þeim heimilt að hefja sölu á lituðu bensíni myndi falla niður 33 króna bensíngjald sem markað er til vegamála, og þannig myndi bensínlítrinn kosta rétt undir 100 krónum MYNDATEXTI Afhending Hugi Hreiðarsson og Albert Þór Magnússon frá Atlantsolíu afhenda undirskriftalistann í fjármálaráðuneytinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar