Agent Fresco hljómsveit

Agent Fresco hljómsveit

Kaupa Í körfu

ÞAÐ má segja að sigurvegari Músíktilrauna þetta árið hafi farið nokkuð nákvæmlega eftir heiti keppninnar, því að um miklar músíktilraunir var að ræða. Framsækið rokk, þar sem myljandi harðkjarni var í einni sæng með melódískum djassi og það í einu og sama laginu. Meðlimir samþættu glæsilega hljóðfæralega kunnáttu og ólgandi ástríðu fyrir sköpunargyðjunni og söngvarinn setti glæstan topp á með andríkum söng og einkar lifandi og skemmtilegri sviðsframkomu MYNDATEXTI Agent Fresco Þetta er allt svo nýskeð að við höfum ekki ákveðið neitt, segir Hrafnkell, trymbill sveitarinnar. Nóg sé þó af hugmyndunum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar