Sund ólympíufarar

Friðrik Tryggvason

Sund ólympíufarar

Kaupa Í körfu

MÉR líst vel á mótið framundan. Ég er í hörkugóðu formi og er þar með bjartsýnn á góðan árangur, sagði Örn Arnarson, sundmaður í samtali við Morgunblaðið en hann hefur keppni á Evrópumeistaramótinu í sundi í 50 m laug í Eindhoven í Hollandi í dag með þátttöku í 50 m flugsundi og 100 m baksundi. Einnig keppir Jakob Jóhann Sveinsson í 100 m bringusundi á mótinu í dag en þeir félagar ríða á vaðið af íslenska hópnum sem einnig telur Ragnheiði Ragnarsdóttur og Sigrúnu Brá Sverrisdóttur. MYNDATEXTI Sundfólkið Jakob J. Sveinsson, Sigrún Brá Sverrisdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir stefna öll á að bæta Íslandsmet sín á Evrópumótinu í Eindhoven sem hefst í dag. Örn Arnarson verður einnig á meðal keppenda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar