Íslensku tónlistarverðlaunin

Íslensku tónlistarverðlaunin

Kaupa Í körfu

BJÖRGÓLFI Guðmundssyni, formanni bankaráðs Landsbankans, voru í gærkvöldi veitt Hvatningarverðlaun Samtóns fyrir margháttaðan stuðning við tónlistarlífið í landinu. Það var Jakob Frímann Magnússon, formaður Samtóns, sem afhenti verðlaunin en afhendingin var hluti af Íslensku tónlistarverðlaununum. Björgólfur sagðist afskaplega stoltur, hefði hann getað lagt eitthvað fram sem væri tónlistinni til framdráttar. Hann tók reyndar fram, í léttum dúr, að hann hefði auðvitað fremur viljað fá verðlaun fyrir tónlist. En ef tónlistin lægi ekki fyrir mönnum yrðu þeir að gera eitthvað annað, t.d. vinna við fjármál. En í dag skuluð þið ekkert vera að hugsa um að skipta um, haldið ykkur bara í tónlistinni, sagði Björgólfur við góðar undirtektir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar