Strýta

Skapti Hallgrímsson

Strýta

Kaupa Í körfu

ÞETTA er mjög sérkennilegur dagur, sagði Freydís Gunnarsdóttir, starfsmaður í rækjuverksmiðjunni Strýtu á Akureyri við Morgunblaðið í gær og óhætt er að trúa því að tilfinningar hennar hafi verið blendnar. Freydís hélt nefnilega upp á 26 ára afmælið í gær, um leið og verksmiðjunni var lokað. MYNDATEXTI Freydís Gunnarsdóttir hefur unnið í Strýtu í tíu ár og hélt upp á 26 ára afmælið í gær: Það er líklega sérkennilegasta afmælisgjöf sem hægt er að hugsa sé að fyrirtækið hætti störfum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar