Skjólbrekka

Birkir Fanndal Haraldsson

Skjólbrekka

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari kom færandi hendi í Dymbilviku með fríðan flokk hljóðfæraleikara og söngkonu. Á skírdag í Skjólbrekku fluttu þau oktett í Fdúr eftir Schubert og einnig sönglög. Það var Sigrún Hjálmtýsdóttir sem flutti sönglögin við undirleik oktettsins. Í Reykjahlíðarkirkju á föstudaginn langa fluttu sömu listamenn alvarlegri stutt verk eftir Bach, Vivaldi, Mozart, Händel og Alan Hovhaness. Húsfyllir var í kirkjunni og listafólkinu ákaflega vel tekið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar