Skíðaþjónustan

Skapti Hallgrímsson

Skíðaþjónustan

Kaupa Í körfu

ÞAÐ fyrirtæki er raunar efni í pistil fyrir sig því öðrum eins liðlegheitum og frábærri þjónustu og þar var að fá hefur Víkverji sjaldan kynnst. Svo komst Víkverji Morgunblaðsins að orði í gær eftir að hafa átt viðskipti við Skíðaþjónustuna á Akureyri um páskana. Víst er að margir kinkuðu kolli þegar þeir lásu Víkverja með morgunkaffinu, enda Viðar Garðarsson og hans fólk í Skíðaþjónustunni við Fjölnisgötu annáluð fyrir að vilja þjóna viðskiptavininum vel. Ef eitthvað vantar eftir lokun er gjarnan hringt heim til eigandans og hann bjargar málum MYNDATEXTI Fær stundum að heyra að hann sé ekki nógu harður í bissness! Viðar Garðarsson í Skíðaþjónustunni á Akureyri ásamt dótturinni Bryndísi, syninum Viðari Frey og tengdadótturinni Jaruek.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar