Suðurlandsvegur

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Suðurlandsvegur

Kaupa Í körfu

ÞETTA ER hroðalegt ástand. Ég fylgist með þessu af athygli og sé þetta oft á þjóðvegum þegar ég er á ferðinni, segir Kristján Möller samgönguráðherra um afstöðu sína til slælegs frágangs á farmi flutningabifreiða á vegum landsins. Ég er þeirrar skoðunar að ef þetta muni ekki skána munum við semja miklu harðari og strangari reglur þar sem allt verður dregið til, að ábyrgð ökumanns og fyrirtækis verði þá tekinn til skoðunar, jafnvel með miklu hærri sektum en nú tíðkast MYNDATEXTI Ábyrgðarhluti Flutningabíllinn til vinstri var á leið um Suðurlandsveg í gær en sá hægra megin var á Selfossi í síðustu viku. Manntjón getur orðið af slysum vegna lélegs frágangs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar