Öryggismál hjá Eimskip

Öryggismál hjá Eimskip

Kaupa Í körfu

Flutningasvið Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) vinnur að handbók um frágang á farmi og er vonast til þess að hún komi út á vordögum. Signý Sigurðardóttir, forstöðumaður flutningasviðs SVÞ, segir að í kjölfarið verði farið í mikla herferð til að vekja ökumenn til umhugsunar um mikilvægi þess að ganga ávallt rétt frá farmi. Í janúar 2007 hittust öryggisstjórar eða fulltrúar Eimskips, Samskips, Skeljungs, Húsasmiðjunnar og Landssambands vörubifreiðaeigenda og bundust samtökum um að taka á öryggismálum í sambandi við flutning á farmi vegna alvarlegra ábendinga, einkum í fjölmiðlum, um að víða væri pottur brotinn í þessu efni. MYNDATEXTI Signý Sigurðardóttir, forstöðumaður flutningasviðs SVÞ, og Eyþór H. Ólafsson, öryggisstjóri hjá Eimskip, á athafnasvæði fyrirtækisins, þar sem allur búnaður til að ganga frá farmi er aðgengilegur þeim sem á þurfa að halda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar