Mótmæli vegna eldsneytishækkunar

Mótmæli vegna eldsneytishækkunar

Kaupa Í körfu

Umfangsmestu mótmæli atvinnubílstjóra til þessa fóru fram í gær "ÞEGAR fremstu bílarnir voru við Seðlabankann voru þeir síðustu ekki lagðir af stað úr Klettagörðum, það var samfelld röð alla leið, margir bættust í hópinn og þetta tókst mjög vel í dag. Við höldum ótrauð áfram þar til við fáum viðbrögð," sagði Hjörtur Jónsson, fulltrúi sendibílstjóra, um mótmæli atvinnubílstjóra vegna hækkana á eldsneytisverði, sem fram fóru í gær. MYNDATEXTI: Áskorun Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra, ræðir við Sturlu Böðvarsson, forseta Alþingis, eftir að honum hafði verið afhent áskorun til ríkisstjórnarinnar um að eldsneytisverð verði tekið til endurskoðunar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar