ÍR svæðið

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

ÍR svæðið

Kaupa Í körfu

ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur lagt til við borgarráð að gengið verði til samninga við ÍR um uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Suður-Mjódd. Um er að ræða byggingu fjölnota íþróttahúss á svæði ÍR. Í húsinu er fyrirhugað að öll íþróttastarfsemi ÍR vegna æfinga og keppni verði, m.a. handknattleikur og körfuknattleikur. Ölduselsskóli og aðrir skólar munu jafnframt nýta aðstöðuna. MYNDATEXTI Gervigras Úlfar Steindórsson, formaður ÍR, segir tilkomu gervigrasvallarins, sem tekinn var formlega í notkun um það leyti sem ÍR varð 100 ára á sl. ári, hafa breytt ótrúlega miklu fyrir starfsemi félagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar