Mótmæla eldsneytisverði

Steinunn Ásmundsdóttir

Mótmæla eldsneytisverði

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Stjórn AFLs Starfsgreinafélags telur nýgerðum kjarasamningum stefnt í hættu með verðhækkunum sem dynja á landsmönnum þessa dagana. Verði ekki gripið tafalaust til aðgerða til verndar kaupmætti launafólks, áskilur félagið sér rétt til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar kunna að teljast til að verja árangur kjarasamninga. AFL samþykkti ályktun þessa efnis á stjórnarfundi sl. miðvikudag. Í henni segir jafnframt að félagið árétti að ekki sé tímabært að ganga frá kjarasamningum fyrir aðra starfshópa en þegar er samið fyrir. MYNDATEXTI AFL Starfsgreinafélag hvetur verkalýðsfélög til dáða

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar