Mótmæli atvinnubílstjóra í Tryggvagötu

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mótmæli atvinnubílstjóra í Tryggvagötu

Kaupa Í körfu

MENN, sem beita ólöglegum aðferðum og fara með ofbeldi gegn samborgurum sínum, geta ekki vænst þess að mikið sé á þá hlustað af ábyrgum stjórnvöldum, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra um mótmæli flutningabílstjóra í miðborg Reykjavíkur í gær. Söfnuðust þeir saman fyrir utan fjármálaráðuneytið og Hafnarhúsið þar sem samgönguráðuneytið er til húsa og þeyttu flautur svo glumdi um allt nágrennið. Þannig vildi til að forsætisráðherra og utanríkisráðherra voru staddir á blaðamannafundi í Hafnarhúsi og hafði bílum ráðherranna verið lagt upp á stétt við inngang safnsins þegar aðgerðirnar hófust. Komust ráðherrabílarnir því hvergi fyrir flutningabílunum. MYNDATEXTI Forsætisráðherra og raunar utanríkisráðherra líka neyddust til að fara fótgangandi frá Hafnarhúsi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar