Gegnum holt og hæðir

Atli Vigfússon

Gegnum holt og hæðir

Kaupa Í körfu

Þingeyjarsveit | Þetta var skemmtilegt og ég sé fyrir mér að mig langi til að leika meira í framtíðinni. Samt var það smástressandi á undan en þegar ég var komin upp á sviðið var eins og enginn væri að horfa. Ég bara söng og fór með textann og leið vel í hlutverkinu á árshátíðinni. Þetta segir Hermína Fjóla Ingólfsdóttir, nemandi í 8. bekk í Litlulaugaskóla í Reykjadal sem lék tröllkonuna í leikritinu Gegnum holt og hæðir eftir Herdísi Egilsdóttur sem sýnt var í félagsheimilinu á Breiðumýri um helgina en leikararnir komu úr eldri bekkjum skólans. MYNDATEXTI Hermína Fjóla og Ína Björk Jóhannsdóttir í hlutverkum sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar