Íshokkí

Íshokkí

Kaupa Í körfu

MARGIR efnilegustu íshokkíleikmenn heims þyrluðu upp ísnum í Egilshöll um helgina. Þar eru í gangi æfingabúðir fyrir leikmenn frá Íslandi, Bandaríkjunum, Kanada, Finnlandi, Svíþjóð og Slóvakíu. Drengirnir, sem eru á aldrinum 12-14 ára, munu æfa saman hér fram á miðvikudag. Liðin sem leika á æfingamótinu eru sett saman úr efnilegum leikmönnum víða að, en skiptast eftir Evrópu og Vesturheimi. Íslendingarnir spila svo með liðum beggja heimsálfa. MYNDATEXTI Leikmenn frá Bandaríkjunum, Kanada, Svíþjóð, Finnlandi, Slóvakíu og Íslandi sýndu sérlega mikla leikni með pökkinn í Egilshöll í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar