Eldsvoði á Skúlabraut á Blönduósi

Jón Sigurðsson

Eldsvoði á Skúlabraut á Blönduósi

Kaupa Í körfu

KARLMAÐUR fórst í eldsvoða í raðhúsi við Skúlabraut á Blönduósi á sunnudagsmorgun. Tilkynnt var um eldsvoðann kl. 6.15 og lagði mikinn og þykkan reyk úr íbúð mannsins sem er mjög skemmd og jafnvel talin ónýt eftir eldinn. Mikill hiti var af eldinum en slökkvistarf gekk vel. Voru næstu íbúðir reykræstar. Maðurinn sem lést hét Björn Kristjánsson og var 48 ára. Hann lætur eftir sig tvo uppkomna syni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar