Fundur um virkjanir á Hellisheiði

Fundur um virkjanir á Hellisheiði

Kaupa Í körfu

HVERGERÐINGAR héldu fund í grunnskóla bæjarins í gærkvöld, þar sem ræddar voru virkjunarframkvæmdir í nágrenni bæjarins, bæði framkvæmdir sem hafnar eru á Hellisheiði, og boðuð Bitruvirkjun og Hverahlíðarvirkjun. Á fundinum fluttu erindi Ingólfur Hrólfsson, sviðsstjóri nýrra virkjana hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Eyþór H. Ólafsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar bæjarins, og Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar MYNDATEXTI Heyra mátti á spurningum úr sal að bæjarbúar höfðu miklar áhyggjur af áhrifum framkvæmdanna. Sumir þeirra lýstu efasendum sínum um gagnsemi þeirra aðgerða sem OR hyggst grípa til til að lágmarka áhrif virkjananna á umhverfi sitt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar