Þorleifur EA

Þorgeir Baldursson

Þorleifur EA

Kaupa Í körfu

HINU árlega netaralli Hafrannsóknastofnunar lýkur í þessari viku. Niðurstöður liggja ekki fyrir en ljóst er að víðast hvar er afli minni en í fyrra. Veiðunum á Selvogsbanka og við Krísuvíkurbjarg lauk fyrir helgina og þar var aflinn að öllum líkindum svipaður og í fyrra, en endanlegar aflatölur liggja ekki fyrir. Báturinn fór líka í erfðasýnatöku aukalega og það á eftir hreinsa þær aflatölur frá til að sjá samanburðinn við aflann í fyrra, segir Valur Bogason, umsjónarmaður netarallsins MYNDATEXTI Þorleifur EA að veiðum inni á Eyjafirði. Hann lýkur netarallinu í vikulokin. Niðurstöður liggja fyrir seinna en verið er að vinna að þeim

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar