Alltaf í boltanum á bml.is

Þorkell Þorkelsson

Alltaf í boltanum á bml.is

Kaupa Í körfu

Alltaf í moltanum á bml.is MIKIL spenna ríkti þegar leiknum Skjóttu á úrslitin lauk á mbl.is. Gestum mbl.is gafst kostur á að skjóta á úrslitin í lokaumferð Landssímadeildarinnar og aðalvinningurinn var ekki af verri endanum; ferð til Prag með Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, gisting á þriggja stjörnu hóteli og miðar á leik íslenska knattspyrnulandsliðsins gegn Tékkum í boði Símans-GSM ásamt Mogga-derhúfu. Aukavinningur var GSM-sími ásamt GSM-Frelsi frá Símanum-GSM. Sá sem var svo lánsamur að hljóta aðalvinninginn var Kópavogsbúinn Þorsteinn Halldórsson (t.v.) sem tekur glaður í bragði við vinningnum af Stefáni Guðjónssyni, markaðs- og framleiðslustjóra Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Aðstandendur leiksins vilja óska öllum vinningshöfum til hamingju. © Morgunblaðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar