Sumarblíða í Reykjavík

Sumarblíða í Reykjavík

Kaupa Í körfu

TÓNLIST vorsins fyllti loftið á suðurhorni landsins í gær og ljóst af mannfjöldanum sem streymdi út úr húsunum að fólk er orðið langeygt eftir góðu veðri. Starfsfólk kaffihúsa í miðborg Reykjavíkur hafði víða sett borð út á gangstétt og vegfarendur kunnu vel að meta þann gjörning svo snemma sumars. MYNDATEXTI Víða stóðu borð kaffihúsa úti á gangstétt og sólþyrstur landinn gat þannig sleikt sólina um leið og kaffisopinn var drukkinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar