Skíðalyfta í Tungudal

Halldór Sveinbjörnsson

Skíðalyfta í Tungudal

Kaupa Í körfu

MJÖG hefur ræst úr snjó og skíðafæri á skíðasvæði Ísfirðinga síðustu daga og með tilkomu nýrrar skíðalyftu efst í Tungudalnum, nýrra snjótroðara og nýs skíðaskála er nú aðstaðan með því besta sem gerist til skíðaiðkana að sögn Rúnars Karlssonar, ferðamálafulltrúa Ísafjarðarbæjar. Rúnar segist því bjartsýnn á góða aðsókn á skíðaviku Ísfirðinga um páskana, dagana 11. til 15. apríl. Ný skíðalyfta var tekin í notkun í síðustu viku. MYNDATEXTI: Ný skíðalyfta Ísfirðinga hefur verið tekin í notkun í Tungudal og er hún efst í dalnum og nær uppá Hauganes.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar