Þjórsá

Sigurður Jónsson

Þjórsá

Kaupa Í körfu

FYRIRHUGAÐ er að reisa nýja brú yfir Þjórsá og er það á vegaáætlun á næsta ári eða árið 2002. Einar Hafliðason, forstöðumaður brúardeildar Vegagerðarinnar, segir að jarðskjálftarnir á laugardag og í fyrrinótt hafi ekki veikt brýr á Suðurlandsundirlendinu svo nokkru nemi, en hann var í gær að skoða brýr á svæðinu. Einar sagði að enn væri verið að fjalla um hvar veglína nýrrar brúar ætti að liggja. Tveir valkostir komi til helst til greina, annars vegar skammt neðan við núverandi brú og hins vegar ofan við holtið sem bærinn Þjórsártún standi á. Enn sé þetta á umræðustigi og ekki búið að taka út alla kosti og galla þessara möguleika. Myndatexti: Séð yfir efra brúarstæðið þar sem auðveldara væri að brúa ána en vegagerð beggja vegna brúar yrði meiri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar