Hveragerði skólalóð

Ragnar Axelsson

Hveragerði skólalóð

Kaupa Í körfu

GRÍÐARLEG ánægja er meðal nemenda í Grunnskólanum í Hveragerði með lóð skólans, en lokið var við endurgerð hennar fyrir um tveimur árum. Lóðin er meiriháttar góð, segir Guðjón Sigurðsson, skólastjóri grunnskólans, en á lóðinni ættu flestir nemendur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar er handboltavöllur, fótboltavöllur, gervigras og nokkrir körfuboltavellir. Að auki eru á lóðinni fjölbreytt og aðlaðandi leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Guðjón segir einu verki við lóðina ólokið, þar eigi enn eftir að koma fyrir rampi fyrir hjólabretti og línuskauta. MYNDATEXTI Fjör Krakkar að leik í frímínútum á endurbættri skólalóð grunnskólans í Hveragerði. Þar er fjölbreytt leikaðstaða fyrir nemendur

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar