Höndin og Gunnar Dal

Höndin og Gunnar Dal

Kaupa Í körfu

GUNNAR Dal rithöfundur hefur verið útnefndur heiðursfélagi mannúðar- og mannræktarsamtakanna Handarinnar. Gunnar hefur starfað mikið í þágu mannúðar og mannræktar. Hann hefur með margvíslegum hætti, meðal annars með stórri bókargjöf, sýnt mikla velvild í garð Handarinnar, að sögn Eyjólfs Magnússonar Scheving, stjórnarformanns Handarinnar, og vill Höndin þakka honum áhuga á málefnum sínum með þessum hætti. Höndin hefur það að markmiði að hjálpa fólki sem er að feta sín fyrstu skref til nýs lífs eftir ýmis áföll og er farvegur fólks í átt til þátttöku í samfélaginu, bæði hvað varðar félagslega færni og atvinnuþátttöku

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar