Ostaslaufa

Ostaslaufa

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er gaman á sunnudagsmorgnum að gleðja fjölskylduna, skreppa í bakarí og kaupa nýbakað brauð og kökur með morgunkaffinu. En ef margir eru í heimili borgar sig að gera smá verðkönnun því verðmunur á bakkelsinu getur verið mikill. Börnum þykir ostaslaufur góðar en í nýlegum ostaslaufuleiðangri þar sem farið var af handahófi í þrjú bakarí í Reykjavík kom í ljós að slaufurnar kosta 155 krónur stykkið í Bernhöftsbakaríi á Bergstaðastræti, 225 krónur hjá Bakarameistaranum í Suðurveri og 285 krónur hjá Jóa Fel í Holtagörðum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar