Friðrik krónprins og fylgdarlið í Stykkishólmi

Gunnlaugur Árnason

Friðrik krónprins og fylgdarlið í Stykkishólmi

Kaupa Í körfu

KLÚBBUR danskra kvenna á Íslandi, Den danske kvindeklub, er ekki alls kostar sáttur við að hafa ekki fengið að hitta krónprinshjónin Friðrik og Maríu meðan á Íslandsdvöl þeirra stóð. Ein stjórnarkvenna klúbbsins, Sif Knudsen, segir konurnar ekki síður skúffaðar en félagsmenn Hins konunglega fjelags, sem ætla að leggja félagið niður af því þeim er aldrei boðið í konunglegar veislur. Steininn tók úr með heimsókn krónprinshjónanna, Hinu konunglega fjelagi var ekki boðið til veislu þeim til heiðurs eða að hitta þau yfirleitt. MYNDATEXTI Eftirsótt Friðrik og Mary hittu fjöldann allan af Íslendingum á meðan á dvöl þeirra stóð hér á landi en skildu suma eftir með sárt ennið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar