Alliance Francaise

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Alliance Francaise

Kaupa Í körfu

SENDIHERRA Frakklands á Íslandi, Olivier Mauvisseau, afhenti á þriðjudag Gullna orðið, Le Mot d'Or, verðlaun í forkeppni sem Gérard Lemarquis, kennari við Háskóla Íslands, skipuleggur árlega í viðskiptafrönsku fyrir keppnina Mot d'Or í Frakklandi. Verðlaunin að þessu sinni hlaut Jóhanna Pálsdóttir og fór afhendingin fram í húsakynnum Alliance Francaise. Nemendum í námskeiði í hagnýtri frönsku fyrir atvinnulífið við Háskóla Íslands gefst tækifæri á að þreyta prófið en í því reynir á notkun orðaforða í viðskiptafrönsku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar