Fjölnisvöllur - Kári Arnórsson

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Fjölnisvöllur - Kári Arnórsson

Kaupa Í körfu

"Það má ekki seinna vera en verktakarnir hafa lofað okkur að stúkan verði tilbúin í hádeginu í dag og við höfum fulla trú á að það takist," segir Kári Arnórsson, stjórnarmaður hjá knattspyrnudeild Fjölnis í Grafarvogi. Þar lögðu fjölmargir stuðningsmenn hönd á plóg í gærkvöldi við lokafrágang og skreytingar á nýrri stúku sem tekin verður í gagnið í kvöld þegar heimamenn í Fjölni leika sinn fyrsta heimaleik í efstu deild knattspyrnunnar og mæta þá KR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar