Börn og slökkvilið

Skapti Hallgrímsson

Börn og slökkvilið

Kaupa Í körfu

Fríður flokkur heimsótti slökkviliðið SLÖKKVILIÐIÐ á Akureyri fékk í gær 300 leikskólabörn í heimsókn. Fulltrúar slökkviliðsins fóru í alla leikskólana í vetur og fræddu börnin og nú fannst Þorbirni Haraldssyni og hans mönnum í liðinu ástæða til að bjóða krökkunum til sín. Þau fengu að spreyta sig á alls kyns þrautum og sprauta vatni úr "alvöru" slöngum. Veðrið lék við Akureyringa, sumum fannst kannski of heitt en stelpan er vonandi ekki að reyna að slökkva á sólinni!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar