Skovbo - Viggo Mortensen

Einar Falur Ingólfsson

Skovbo - Viggo Mortensen

Kaupa Í körfu

STARFSFÓLKI Ljósmyndasafns Reykjavíkur í Grófarhúsinu hefur á liðnum vikum borist fjöldi bréfa frá erlendum unnendum Viggo Mortensen, en sýning á verkum hans verður opnuð annan laugardag. Einkum vill fólk vita hvort ljósmyndarinn verði sjálfur við opnun sýningarinnar. Hinn dansk-bandaríski Mortensen sýnir verk sem hann kallar Skovbo. Mortensen hefur gefið út fjölda ljósmynda- og ljóðabóka en hann er kunnastur fyrir leik sinn, ekki síst í hlutverki Aragorn í Hringadróttinssögu. MYNDATEXTI: Styðja Skovbo María Karen Sigurðardóttir og Elín Sigfúsdóttir undirrituðu samning um stuðning Landsbankans við sýningu Mortensen.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar