Hljómsveitin Steini

Hljómsveitin Steini

Kaupa Í körfu

ÞETTA kom mér rosalega á óvart,“ segir Þorsteinn Einarsson, betur þekktur sem Steini, en hljómsveit hans bar sigur úr býtum í Þorskastríði Cod Music í síðustu viku. Alls barst tónlist frá 102 flytjendum í keppnina, en í verðlaun var plötusamningur við útgáfuna. Ég er ennþá að átta mig á þessu. Ég var líka að útskrifast úr Kvikmyndaskólanum hinn 17. maí, og daginn áður fékk ég að vita að ég hefði fengið þennan plötusamning. Þannig að þetta voru ansi stórir dagar, segir Steini sem sendi frá sér sína fyrstu plötu, Behold, í fyrra. MYNDATEXTI Ég og bróðir minn málum okkur og ég fer í búning, set á mig grifflur og mála mig í kringum augun eins og pandabjörn,“ segir Steini sem sést hér með bróður sínum sem kallar sig Golden Boy.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar