Suðurlandsskjálftinn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Suðurlandsskjálftinn

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er ótrúlegt að enginn skyldi slasast,“ segir Árni Hilmar Friðgeirsson, verslunarstjóri Bónuss á Selfossi. Þar voru á þriðja tug manna inni þegar skjálftinn reið yfir. Starfsmaður Bónuss líkti ástandinu við það að vera í skipi í stórsjó. Veggir og loft bylgjuðust, það hrundu plötur úr loftum og vörur úr hillum. Viðskiptavinirnir og starfsfólkið hljóp frá körfum sínum og óstraujuðum kortum og út á götu. Árni Hilmar þakkar fyrir að ekki skyldu verða slys á fólki. MYNDATEXTI Hótel Selfoss var rýmt. Starfsfólk fyrirtækja beið og reyndi að stappa stálinu hvað í annað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar