Sameinað mjólkursamlag

Kristján Kristjánsson

Sameinað mjólkursamlag

Kaupa Í körfu

Samið um allt að 34% eign bænda í sameinuðu mjólkursamlagi á Norðurlandi eystra KEA skerðir eigið fé mjólkursamlagsins um hálfan milljarð STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga samþykkti í gær að heimila stjórnarformanni og kaupfélagsstjóra að ganga frá samkomulagi við viðræðunefnd mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu um eignaraðild framleiðenda að mjólkursamlögunum á grundvelli samningsdraga sem liggja fyrir. Stofnuð hafa verið einkahlutafélög um mjólkursamlögin, MSKEA ehf. um samlagið á Akureyri og MSKÞ ehf. um samlagið á Húsavík og á KEA félögin að öllu leyti. Félögin verða sameinuð í eitt félag. MYNDATEXTI: Formaður KEA og samningamenn bænda fara yfir drög að samningi um aðild bænda að nýju mjólkurfélagi, f.v. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Sigurgeir Hreinsson og Haukur Halldórsson. (myndvinnsla akureyri. jóhannes geir sigurgeirsson, sigurgeir hreinsson og haukur halldórsson fara yfir pappíra. litur. mbl. kristjan.)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar