Sólheimar í Grímsnesi - Postularnir

Sólheimar í Grímsnesi - Postularnir

Kaupa Í körfu

Postularnir buðu heimilismönnum á Sólheimum í árlega ökuferð GLATT var á hjalla á Sólheimum í Grímsnesi í gær. Þá komu Postularnir, meðlimir í Bifhjólasamtökum Suðurlands, í heimsókn og buðu heimilismönnum með sér í stutta ökuferð um næsta nágrenni. Að sögn Baldurs Róbertssonar, stofnanda og formanns Bifhjólasamtakanna, er þetta sjöunda árið í röð sem ferðin er farin að Sólheimum og komust færri að en vildu. Baldur hefur af því spurnir að heimilismenn bíði spenntir eftir komu þeirra á hverju ári. Skyldi engan undra, það er tilkomumikið að sjá hátt í 30 hjól renna í hlaðið í halarófu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar