Icelandair

Skapti Hallgrímsson

Icelandair

Kaupa Í körfu

DANSKI sérfræðingurinn Carsten Grøndahl, sem starfar við dýragarðinn í Kaupmannahöfn, kom til landsins um miðjan dag í gær. Hafði hann með sér stórt búr, deyfibyssu og lyf. Hann var því vel búinn til verkefnisins en eitt kom mönnum þó á óvart. Með honum í för var nefnilega 10 ára sonur hans. Þar sem fyrirvarinn var svo skammur og óvíst hversu lengi björninn héldist rólegur náðist ekki að finna fyrir drenginn pössun. MYNDATEXTI Allt samkvæmt áætlun Sigurður Hermannsson, umdæmisstjóri Flugstoða á Akureyri, fylgist með á Akureyrarflugvelli eftir að vél Icelandair Cargo lenti þar um miðjan dag í gær. Búrið undir björninn er þarna komið á gula lyftarabílinn, en ekið var með það á pallbíl að bænum Hrauni..

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar