Ólympíulið fatlaðra

Ólympíulið fatlaðra

Kaupa Í körfu

FIMM íslenskir íþróttamenn undirbúa sig nú fyrir Ólympíumót fatlaðra sem fram fer í Peking í september og keppa þar í sundi, frjálsíþróttum og kraftlyftingum. Þátttökulöndum á Ólympíumóti fatlaðra er úthlutað ákveðið mörgum sætum allt eftir árangri á alþjóðlegum mótum síðustu þrjú ár á undan. Það er svo í höndum þátttökulandanna að ákveða hvaða keppendur fylla þessi sæti. MYNDATEXTI Til Kína Jón Oddur Halldórsson, Þorsteinn Magnús Sölvason, Baldur Ævar Baldursson, Sonja Sigurðardóttir og Eyþór Þrastarson verða á meðal keppenda á Ólympíumóti fatlaðra sem hefst 6. september í Peking í Kína. Jón og Baldur keppa í frjálsíþróttum, Þorsteinn í lyftingum, Sonja í sundi líkt og Eyþór

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar